Utanríkisráðherrar Belgíu, Hollands og Lúxemborgar sóttu Ísland heim
Samband Íslands og Benelux-ríkjanna, innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og samskipti yfir Atlantsála voru efst á baugi fundar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra með Maxime Prévot, utanríkisráðherra Belgíu, Tom Berendsen, utanríkisráðherra Hollands, og Xavier Bettel, utanríkisráðherra Lúxemborgar, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu í dag.
„Þetta eru þegar miklar vinaþjóðir okkar Íslendinga til áratuga, og við ráðherrarnir ræddum hvernig við getum styrkt böndin enn frekar, ekki síst á sviði varnar- og öryggismála og viðskipta- og efnahagsmála,“ segir Þorgerður Katrín. „Fundurinn var afar jákvæður og þegar talið barst að niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar undirstrikuðu þremenningarnir að þeir virði vilja meirihluta þjóðarinnar, en úrslitin breyti engu um okkar góða samband. Við séum sannarlega órjúfanlegur hluti af Evrópufjölskyldunni. Bæði sem öflugt samstarfsríki en ekki síður á grundvelli EES-samstarfsins sem við viljum efla.“
Meðan á heimsókn þeirra stóð kynntu utanríkisráðherrarnir sér m.a. starfsemi Orkuveitunnar á Hellisheiði, áttu fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og heimsóttu öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli.