21. september 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið endurnýjar samstarfssamning við Norðurslóðanet Íslands

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Embla Eir Oddsdóttir, forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands, handsala samninginn að undirritun lokinni.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Embla Eir Oddsdóttir forstöðumaður Norðurslóðanets Íslands undirrituðu á föstudaginn endurnýjaðan samstarfssamning til fimm ára eða til loka árs 2031.

„Norðurslóðanetið er utanríkisráðuneytinu afar mikilvægur samstarfsaðili og hefur á undanförnum árum þróast úr því að vera innlendur samstarfs- og upplýsingavettvangur yfir í að vera virkur framkvæmdaraðili verkefna á sviði norðurslóðamála, bæði hér heima sem og á alþjóðavettvangi,“ sagði Þorgerður Katín í ávarpi sem hún flutti af þessu tilefni. „Þar liggur nefnilega styrkurinn. Þekkingin er hér. Tengslin eru hér. Og hér er getan til að leiða saman háskólasamfélagið, sveitarfélög, atvinnulíf, stjórnsýslu og félagasamtök.“

Elín Díanna Gunnarsdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Akureyri, og Hlynur Guðjónsson, deildarstjóri norðurslóðadeildar í utanríkisráðuneytinu og aðalfulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins, voru jafnframt viðstödd undirritun samningsins, sem fram fór á Akureyri.

Norðurslóðanet Íslands var stofnað árið 2013 til að vera miðstöð norðurslóðarannsókna og samstarfsvettvangur þeirra sem vinna að málefnum norðurslóða. Norðurslóðanetið er sjálfseignarstofnun sem hefur frá upphafi notið kjölfestufjármögnunar frá ríkinu í formi samningsbundinna rekstrarframlaga frá utanríkisráðuneytinu.

Kjarnahlutverk norðurslóðanetsins verður áfram að efla samráð, tengsl og miðlun um málefni norðurslóða innanlands, en nýji samstarfssamningurinn felur í sér fjögur megin áherslusvið:

•    Í fyrsta lagi mun Norðurslóðanetið áfram styðja við þátttöku Íslands í starfi Norðurskautsráðsins,
•    Í öðru lagi mun Norðurslóðanetið efla innlent samráð og samvinnu um málefni norðurslóða með þátttöku háskólasamfélagsins, sveitarfélaga, atvinnulífsins og félagasamtaka og tryggja aukna þekkingu á starfsemi og vægi svæðisins innanlands og á alþjóðavettvangi,
•    Í þriðja lagi verður áhersla á að þróa áfram þá miðstöð norðurslóðamála á Íslandi sem þegar hefur myndast á Akureyri í samstarfi við áhugasama aðila af landinu öllu samkvæmt norðurslóðastefnu Íslands frá 2021,
•    Og í fjórða lagi mun Norðurslóðanetið sinna ákveðnum verkefnum á vegum utanríkisráðuneytisins til dæmis hvað varðar alþjóðatengsl, svo sem norrænt samstarf, og verkefni innanlands.

Að lokum þakkaði utanríkisráðherra, Háskólanum á Akureyri, CAFF, PAME, Stofnun Stefáns Vilhjálmssonar, International Arctic Science Committee, Akureyrarbæ og Norðurslóðanetinu ásamt öðrum samstarfsaðilum á Akureyri fyrir forystu í norðurslóðamálum jafnt innanlands sem utan og gott samstarf við utanríkisráðuneytið.

Nánari upplýsingar um Norðurslóðanetið má finna hér.