Yfirmaður Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (JEF) heimsótti Ísland
Olly Brown, tveggja stjörnu hershöfðingi og nýskipaður yfirmaður Sameiginlegu viðbragðssveitarinnar (e. Joint Expeditionary Force, JEF), kom nýverið í sína fyrstu opinberu heimsókn til Íslands.
Í heimsókninni átti Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fund með Brown um vaxandi samtarf Íslands við JEF. Á fundunum var meðal annars fjallað um stöðu og þróun varnarsamstarfs innan JEF, auk öryggis- og varnarmála á Norður-Atlantshafssvæðinu og norðurslóðum.
Brown heimsótti jafnframt öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli þar sem honum voru kynnt varnartengd verkefni Íslands, s.s. loftrýmiseftirlit og gistiríkjastuðningur Íslands við bandalagsríki. Heimsókninni lauk með viðburði í breska sendiráðinu þar sem starfsemi viðbragðsveitarinnar og framlag Íslands var til umræðu.
JEF er samstarfsvettvangur ríkja í Norður-Evrópu sem hefur það að markmiði að efla hagnýta samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála. Undanfarið hafa verkefni og aðgerðir á vegum JEF í auknum mæli beinst að vörnum gegn fjölþáttahernaði, þar á meðal að vernd mikilvægra innviða á og í hafi, svo sem neðansjávarinnviða, borpalla og vindorkuvera.
Ísland er með útsendan tengslafulltrúa hjá bresku herstjórninni í Northwood á Englandi þar sem höfuðstöðvar JEF eru staðsettar. Þá hafa íslensk stjórnvöld lagt til sérfræðinga í verkefni JEF, meðal annars með þátttöku upplýsingafulltrúa í verkefnum sem tengjast eftirliti með neðansjávarinnviðum aðildarríkjanna. Framundan er áframhaldandi þátttaka Íslands í samstarfi JEF, þar á meðal í æfingunni Lion Protector, sem fram fer síðar á árinu.