3. nóvember 2026
/
Dómsmálaráðuneytið

Mælti fyrir vændiskaupafrumvarpi á Alþingi

{image.Description}

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi um breytingar á vændisákvæði hegningarlaga á Alþingi í dag.  Frumvarpinu er ætlað að draga úr eftirspurn eftir vændi, sporna gegn mansali í kynferðislegum tilgangi og taka fast á skipulagðri brotastarfsemi og kynferðisbrotum. Sambærileg breyting var gerð á sænsku hegningarlögunum á síðasta ári.

Í frumvarpinu er lagt til að sektir verði afnumdar sem refsing fyrir vændiskaup. Þannig verði ekki lengur heimilt að ljúka vændiskaupamálum með lögreglustjórasekt, heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls.

„Vændiskaupendur hafa hingað til notið ákveðinnar sérmeðferðar innan réttarvörslukerfisins og getað sloppið með sekt fyrir brot sín. Það er óásættanlegt. Við vitum að vændi og mansal eru nátengd og verðum að beina sjónum að eftirspurninni sem heldur starfseminni gangandi,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Aukin refsivernd barna og þyngri viðurlög

Vændiskaup hafa verið refsiverð á Íslandi frá árinu 2009. Fyrstu vændiskaupabrotum er í dag að jafnaði lokið með 200 þúsund króna lögreglustjórasekt. Breytingunni er ætlað að tryggja að meðferð þessara mála endurspegli betur alvarleika brotanna og auka varnaðaráhrif laganna.

Jafnframt er lagt til að hámarksrefsing fyrir brot sem beinast gegn börnum verði þyngd úr tveggja ára fangelsi í fjögurra ára fangelsi. Þá geti gáleysi um aldur barns einnig varðað refsingu samkvæmt ákvæðinu og að skýrt verði tekið fram að vændiskaup séu refsiverð þótt annar maður greiði fyrir þau.

Náin tengsl við skipulagða brotastarfsemi

Að mati lögreglu er vændi að mestu drifið áfram af skipulagðri brotastarfsemi og grunur er að stór hluti kvenna sem auglýstar eru í vændi séu þolendur mansals. Í greinargerð með frumvarpinu er lögð áhersla á að eftirspurn eftir vændi sé ein helsta forsenda þess að mansal og kynferðisleg hagnýting þrífist. Með því að draga úr eftirspurninni sé því jafnframt unnið gegn skipulagðri brotastarfsemi og misneytingu fólks í viðkvæmri stöðu.

Var efnið hjálplegt?