Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30. mars 1998 /
Utanríkisráðuneytið

Nr. 022, 30. mars 1998:Utanríkisráðherra Noregs í opinberri heimsókn á Íslandi.


FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Nr. 22

Knut Vollebæk utanríkisráðherra Noregs verður í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 1. og 2. apríl næstkomandi í boði Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra. Með honum í för verður eiginkona hans frú Ellen Sofie Aadland Vollebæk.
Á miðvikudag 1. apríl mun hann eiga fundi með utanríkisráðherra og forsætisráðherra. Fimmtudaginn 2. apríl mun hann m.a. heimsækja Alþingi og sitja fund með utanríkismálanefnd Alþingis.

Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 30. mars 1998.

_____________


Var efnið hjálplegt?