Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
28. maí 1998 /
Utanríkisráðuneytið

Nr. 052, 28. maí 1998: Samstarfsráð Atlantshafsbandalagsins og Rússlands fordæmir kjarnasprengingar Indverja og Pakistana.

Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sat í dag fund Samstarfsráðs Atlantshafs- bandalagsins og Rússlands í Lúxemborg.
Á fundinum var samþykkt meðfylgjandi yfirlýsing, þar sem kjarnasprengingar Indverja og Pakistana í tilraunaskyni eru fordæmdar. Þetta er fyrsta sameiginlega yfirlýsing Samstarfsráðsins.

Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 28. maí 1998.

Var efnið hjálplegt?