Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
2. október 1998 /
Utanríkisráðuneytið

Nr. 86, 2. október 1998: 55 afmæli stjórnmálasambands Íslands og Rússlands sunnudaginn 4. október nk.

Í tilefni af fimmtíu og fimm ára afmæli stjórnmálasambands Íslands og Rússlands sunnudaginn 4. október nk. sendi Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, Igor S. Ivanov, nýskipuðum utanríkisráðherra Rússlands heillaóskaskeyti í dag þar sem hann sendir honum og rússnesku þjóðinni kveðju frá íslensku þjóðinni með bestu óskum um áframhald á traustum samskiptum ríkjanna tveggja.

Utanríkisráðuneytið
Reykjaík, 2. október 1998.

Var efnið hjálplegt?