Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
11. apríl 2000 /
Forsætisráðuneytið

Leiðtogafundur í Kolding

Leiðtogafundur í Kolding

Davíð Oddsson forsætisráðherra heldur í dag til Danmerkur til að sitja leiðtogafund Eystrasaltsráðsins í Kolding á Jótlandi 12.-13. apríl.

Meðan á leiðtogafundinum stendur mun forsætisráðherra eiga fundi með annars vegar Gerhard Schröder kanslara Þýskalands og hins vegar Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs.

Í Reykjavík, 11. apríl 2000

Var efnið hjálplegt?