Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
27. nóvember 2001 /
Utanríkisráðuneytið
Benedikt Jónsson sendiherra afhendir trúnaðarbréf í Moldóvu
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 121
Benedikt Jónsson sendiherra afhenti í dag, þriðjudaginn 27. nóvember 2001, Vladimir N. Voronin, forseta Moldóvu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Moldóvu með aðsetur í Moskvu.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 27. nóvember 2001.