Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
22. október 2002 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Varafélagsmálaráðherra Kína ásamt sendinefnd í heimsókn
Varafélagsmálaráðherra Kína, Zhang Yinzhong, kemur í heimsókn til Íslands 22.–24. október á vegum félagsmálaráðuneytisins. Tilgangur ferðar varafélagsmálaráðherrans er að kynna sér félags- og heilbrigðismál á Íslandi. Hann mun m.a. heimsækja félagsmálaráðuneytið, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Barnaverndarstofu og eitt af nýju sambýlunum á höfuðborgarsvæðinu. Þá mun hann skoða sig um á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi.