Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
10. mars 2003 /
Innviðaráðuneytið

Ráðning aðstoðarvegamálastjóra

Gunnar Gunnarsson hrl., hefur verið ráðinn í embætti aðstoðarvegamálastjóra. Gunnar var valinn úr hópi níu umsækjenda.

Gunnar Gunnarsson lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1966 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1972. Gunnar hefur starfað sem lögfræðingur hjá Vegagerðinni frá árinu 1973 og sem framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs Vegagerðarinnar frá árinu 1990 og í yfirstjórn stofnunarinnar frá sama tíma.


Var efnið hjálplegt?