Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
5. september 2003 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Nýr forstöðumaður hjá Ráðgjafarstofu

Ásta S. Helgadóttir hefur verið ráðinn forstöðumaður á Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og tók til starfa 1. september sl. Hún nam lögfræði við Háskóla Íslands og hefur undanfarin ár starfað í félagsmálaráðuneytinu. Áður starfaði hún hjá félagsþjónustunni í Reykjavík og var lögfræðingur fjölskyldudeildar og barnaverndarnefndar Reykjavíkur.



Heimasíða Ráðgjafarstofu

Var efnið hjálplegt?