Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
1. október 2003 /
Utanríkisráðuneytið
Afhending trúnaðarbréfs í Malasíu
Nr. 102
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
Ólafur Egilsson sendiherra afhenti í dag Tuanku Syed Sirajuddin Putra Jamalullail, konungi Malasíu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Malasíu.
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 1. október 2003