Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
19. febrúar 2004 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Aukning loðnukvótans

Aukning loðnukvótans.

Sjávarútvegsráðuneytið hefur að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar aukið loðnukvóta yfirstandandi vertíðar úr 635 þús. lestum í 875 þús. lestir eða um 240 þús. lestir. Aukning þessi kemur öll í hlut íslenskra veiðiskipa og verður heildarkvóti þeirra eftir aukninguna 737.345 lestir.

 

Sjávarútvegsráðuneytið 19. febrúar 2004.

Var efnið hjálplegt?