Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30. desember 2004 /
Forsætisráðuneytið

Flaggað í hálfa stöng á nýársdag vegna náttúruhamfaranna í Asíu

Forsætisráðherra hefur ákveðið að fáni skuli dreginn í hálfa stöng við opinberar stofnanir á nýársdag vegna náttúruhamfaranna í Asíu.

Slíkt hið sama verður gert í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi á nýársdag og hefur verið mælst til þess að almenningur votti hinum látnu virðingu sína á sama hátt.

Í Reykjavík, 30. desember 2004.



Var efnið hjálplegt?