Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
7. mars 2005 /
Innviðaráðuneytið
Fjölgun gistinátta í janúar nemur 13% milli ára
Gistinóttum á hótelum í janúarmánuði hefur fjölgað milli ára. Síðastliðinn janúar voru þær 36.364 en 32.050 á sama tíma í fyrra.
Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Á Suðurlandi fjölgaði gistinóttum um tæplega 20%, aukningi var ögn minni á höfuðborgarsvæðinu eða rúm 16%. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um tæp 7% og á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum nam aukningin um 1,5%.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíður Ferðamálaráðs, www.ferdamalarad.is.