Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
13. júní 2005 /
Innviðaráðuneytið
Breyting á reglugerð um umferðarmerki
Samgönguráðuneytið óskar álits almennings og hagsmunaaðila á drögum að reglugerð.
Í samræmi við markmið ráðuneytisins um opna stjórnsýslu óskar ráðuneytið eftir áliti á drögum að reglugerð sem breytir reglugerð nr. 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra.
Um minniháttar breytingar er að ræða, þar sem tveimur þjónustumerkjum er bætt við 11.gr. reglugerðarinnar og nýtt undirmerki bætist við 17.gr. Sjá drögin í heild sinni (Word - 149KB).
Álit óskast sent fyrir 20. júní 2005 til Samgönguráðuneytis, Hafnarhúsinu Tryggvagötu, 150 Reykjavík eða á [email protected].