Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
26. september 2005 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar

Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og félagsmálaráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar.

Prófnefnd leigumiðlara heldur námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar í október-nóvember nk. ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er haldið samkvæmt húsaleigulögum, nr. 36/1994, og reglugerð um leigumiðlun, nr. 675/1994.

Skráning og nánari upplýsingar eru veittar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.



Var efnið hjálplegt?