Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
28. september 2005 /
Forsætisráðuneytið

Breytingar á stjórnarskrárnefnd

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur að ósk Geirs H. Haarde utanríkisráðherra leyst hann undan störfum í stjórnarskrárnefnd. Í hans stað hefur forsætisráðherra, að tillögu Sjálfstæðisflokksins, skipað Bjarna Benediktsson alþingismann í nefndina.

Reykjavík 28. september 2005



Var efnið hjálplegt?