Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
8. október 2005 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Reykjanes

Íbúar Hafnarfjarðarkaupstaðar samþykktu tillögu um sameiningu sveitarfélagsins við Vatnsleysustrandarhrepp, en íbúar Vatnsleysustrandarhrepps höfnuðu tillögunni.
Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaga á Reykjanesi hefur tilkynnt úrslit atkvæðagreiðslu um sameiningu Hafnarfjarðarkaupstaðar og Vatnsleysustrandarhrepps.

Niðurstaðan er endanleg.
Fyrirvari: Niðurstöður atkvæðagreiðslna eru byggðar á upplýsingum frá samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna á viðkomandi svæði.