Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
12. júlí 2006 /
Utanríkisráðuneytið

Samúðarkveðjur til utanríkisráðherra Indlands

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur ritað bréf til Manmohan Singh starfandi utanríkisráðherra Indlands þar sem sprengjuárásirnar á farþegalestir í borginni Mumbai á Indlandi eru fordæmdar og indversku þjóðinni vottuð samúð vegna hryðjuverkanna. Þá ítrekaði utanríkisráðherra stuðning íslenskra stjórnvalda við baráttuna gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi.



Var efnið hjálplegt?