Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
28. febrúar 2007 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Endurskoðun á greiðsluhlutfalli Jöfnunarsjóðs vegna húsaleigubóta ársins 2006

Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hefur samþykkt að leggja til að greiðsluhlutfall sjóðsins vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum á árinu 2006 væri hækkað úr 40,5 prósentum í 54,8 prósent.

Félagsmálaráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar og hefur greiðsla vegna þessa nú þegar verið innt af hendi til sveitarfélaganna.

Endanleg framlög Jöfnunarsjóðs vegna greiðslu sveitarfélaga á húsaleigubótum má sjá inn á heildaryfirliti yfir framlög sjóðsins á árinu 2006.

Var efnið hjálplegt?