Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
27. mars 2007 /
Forsætisráðuneytið
Heimsókn Fredriks Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar til Íslands
Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, kemur í opinbera heimsókn til Íslands mánudaginn 2. apríl n.k. Hann mun eiga fund og snæða hádegisverð með Geir H. Haarde, forsætisráðherra, og síðan hitta íslenska kaupsýslumenn í Viðskiptaráði Íslands.
Reykjavík 27. mars 2007