Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
1. júní 2007 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Embætti forstöðumanns Húsafriðunarnefndar
Umsóknarfrestur um embætti forstöðumanns Húsafriðunarnefndar rann út 25. maí sl.
Menntamálaráðuneytinu bárust fimm umsóknir um stöðuna.
Umsóknarfrestur um embætti forstöðumanns Húsafriðunarnefndar rann út 25. maí sl. Menntamálaráðuneytinu bárust fimm umsóknir um stöðuna.
Umsækjendur eru:
Friðrik Friðriksson, arkitekt,
Guðmundur Lúther Hafsteinsson, arkitekt,
Kjartan Gunnar Kjartansson, blaðamaður,
Nikulás Úlfar Másson, arkitekt og
Páll Björgvinsson, arkitekt og byggingarmeistari.
Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. nóvember 2007.