Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
5. febrúar 2008 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Verkmenntaskóla Austurlands rann út föstudaginn 1. febrúar sl. Menntamálaráðuneyti bárust þrjár umsóknir um stöðuna.
Umsóknarfrestur um stöðu skólameistara við Verkmenntaskóla Austurlands rann út föstudaginn 1. febrúar sl. Menntamálaráðuneyti bárust þrjár umsóknir um stöðuna. Umsækjendur eru:
Jóhannes Ágústsson, framhaldsskólakennari,
Marinó Stefánsson, framhaldsskólakennari og
Olga Lísa Garðarsdóttir, framhaldsskólakennari
Miðað er við að menntamálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. mars nk., að fenginni tillögu hluteigandi skólanefndar, skv. 2. mgr. 11. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 80/1996 og sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.