Auglýsing um styrki til framhaldsnáms í Frakklandi
Sendiráðs Frakklands á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um námsstyrki fyrir skólaárið 2008-2009. Nemendur úr öllum námsgreinum geta sótt um styrki en þeir eru einkum ætlaðir masters- og doktorsnemum. franski_faninnSendiráðs Frakklands á Íslandi auglýsir eftir umsóknum um námsstyrki fyrir skólaárið 2008-2009. Nemendur úr öllum námsgreinum geta sótt um styrki en þeir eru einkum ætlaðir masters- og doktorsnemum.
Hver styrkur felur í sér greiðslu ferðakostnaðar, hluta framfærslukostnaðar og niðurfellingu skólagjalda í ríkisreknum háskólum. Einnig njóta styrkþegar ákveðinna hlunninda varðandi húsnæði, niðurgreiðslu heilbrigðisþjónustu sem og hjálp varðandi stjórnsýslu.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá menningar- og vísindadeild franska sendiráðsins, Túngötu 22, 101 Reykjavík, sími 575-9603.
Einnig er hægt að fá umsóknareyðublöð send með tölvupósti sé þess óskað með að hafa samband við Rósu Davíðsdóttur: [email protected].