Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
4. nóvember 2008 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Leiðrétting fréttar í Fiskaren

Leiðrétting fréttar í Fiskaren

Vegna fréttar á vef norska blaðsins Fiskaren vill sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið taka fram að frétt blaðsins um að lokað hafi verið á innflutning íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja til Rússlands á ekki við rök að styðjast. Sendiherra Íslands í Rússlandi hefur fengið staðfest, eftir viðræður við hlutaðeigandi yfirvöld, að fréttin sé á misskilningi byggð og tilkomin vegna mistaka í fréttatilkynningu. Ekkert sé hæft í fréttinni.



Var efnið hjálplegt?