Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
18. desember 2008 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Skipun skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ
Tólf umsóknir bárust um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ.
Tólf umsóknir bárust um embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Menntamálaráðherra hefur að fenginni umsögn skólanefndar skólans skipað Guðbjörgu Aðalbergsdóttur í embætti skólameistara Framhaldsskólans í Mosfellsbæ til fimm ára frá 15. janúar 2009 að telja.