Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
23. desember 2008 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Styrkir til hjálparsamtaka
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur veitt 5 milljónir króna til styrktar félaga- og hjálparsamtaka sem liðsinna heimilislausum og fjölskyldum í fjárhagsvanda. Styrki hljóta að þessu sinni Hjálpræðisherinn, Mæðrastyrksnefndir í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og á Akureyri, Fjölskylduhjálpin, Hjálparstarf kirkjunnar, Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands og Kaffistofa Samhjálpar.