Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
27. mars 2009 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofnum 2009

Í dag hefur verið gefin út reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofnum 2009. Heildaraflamarkið er óbreytt frá fyrra ári , eða 21.083 lestir. Þar af má veiða 14.758 lestir á norðaustur veiðisvæðinu, þó ekki yfir 3.162 lestir á tímabilinu frá 1. apríl til 10. maí 2009.

Reglugerðina má finna hér.



Var efnið hjálplegt?