Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
16. apríl 2009 /
Innviðaráðuneytið
Samgönguráðherra afhenti skipunarbréf
Kristján L. Möller samgönguráðherra afhenti í gær Karli Alvarssyni lögfræðingi skipunarbréf sem skrifstofustjóri samgönguskrifstofu samgönguráðuneytisins.
Karl var valinn úr hópi fjölmargra umsækjenda um stöðuna og er skipaður í embættið til fimm ára. Meðal verkefna samgönguskrifstofu eru innviðir samgangna, umsjón samgönguáætlunar, flutningar, almenningssamgöngur, slysarannsóknir og öryggismál.
| Kristján L. Möller afhendir Karli Alvarssyni skipunarbréf sem skrifstofustjóri samgönguskrifstofu. |