Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
10. maí 2009 /
Forsætisráðuneytið

Ríkisráðsfundir á Bessastöðum sunnudaginn 10. maí 2009

Frá ríkisráðsritara

Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til tveggja funda á Bessastöðum í dag. Hefst sá fyrri kl. 17:00, þar sem fyrsta ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur lýkur störfum. Seinni fundurinn hefst kl. 18:15 þar sem forseti Íslands mun skipa annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur.

Reykjavík 10. maí 2009

Var efnið hjálplegt?