Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
18. ágúst 2009 /
Innviðaráðuneytið
Tímabundnar breytingar í röðum skrifstofustjóra samgönguráðuneytisins
Samgönguráðherra hefur sett Ingilín Kristmannsdóttur, viðskiptafræðing á skrifstofu stjórnsýslu og fjármála, í embætti skrifstofustjóra skrifstofunnar í eitt ár frá 1. september næstkomandi að telja.
Ráðherra hefur veitt Unni Gunnarsdóttur, skipuðum skrifstofustjóra, leyfi frá störfum í sama tíma en hún hefur verið sett í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í leyfi skipaðs dómara.