Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
26. september 2009 /
Utanríkisráðuneytið
Utanríkisráðherra fundar með breskum og hollenskum starfsbræðrum
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, og Maxime Verhagen, utanríkisráðherra Hollands, áttu í gær, föstudag, formlegan fund í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Ráðherrarnir ræddu stöðu Icesave-málsins og fór utanríkisráðherra meðal annars yfir fyrirvara Alþingis. Utanríkisráðherra fór yfir efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar sem unnin er í samvinnu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ítrekaði mikilvægi þess að ekki yrðu frekari tafir á endurskoðun áætlunarinnar.