Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
21. október 2009 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Styrkir til grunnnáms í listdansi
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla er kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla.
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla er kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að skólinn hafi hlotið viðurkenningu ráðuneytisins á starfseminni samkvæmt viðmiðum sem ráðuneytið hefur sett. Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda á hverju stigi grunnnámsins, upplýsingar um kennslustundafjölda og skólagjöld.
- Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði á vef ráðuneytisins, /afgreidsla/sjodir-og-eydublod/menntamal/nr/3665.
- Umsóknarfrestur er til 16. nóvember næstkomandi.