Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
16. mars 2010 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Samráðshópur um vigtun sjávarafla

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að skipa samráðshóp ráðuneytisins, Hafnasambandsins og Fiskistofu til að fara yfir ýmis umkvörtunarefni og álitamál varðandi hlutverk hafnanna við vigtun sjávarafla og leita lausna á þeim.


Í samráðshópnum eru:

Brynhildur Benediktsdóttir deildarsérfræðingur í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu formaður hópsins, Már Sveinbjörnsson og Björn Arnaldsson tilnefndir af Hafnasambandi Íslands
Eyþór Björnsson tilnefndur af Fiskistofu, varafulltrúi hans er Helga Sigurrós Valgeirsdóttir.



Var efnið hjálplegt?