Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30. mars 2010 /
Innviðaráðuneytið
Lengri umsagnarfrestur fyrir drög að fjarskiptalagafrumvarpi
Ákveðið hefur verið að lengja umsagnarfrest vegna frumvarps um breytingar á fjarskiptalögum. Unnt verður að skila umsögnum til þriðjudags 6. apríl næstkomandi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur ákveðið að verða við beiðni fjarskiptaráðs og veita tveggja vikna viðbótarfrest til þess að skila inn athugasemdum við ofangreint frumvarp. Breytt hefur verið orðalagi í bráðabirgðaákvði frumvarpsdraganna og eru drögin með þeirri breytingu í viðhengi hér að neðan.
Þeir sem óska eftir að senda inn umsögn eru beðnir að gera það á netfangið [email protected].