Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
6. september 2010 /
Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra í heimsókn til Færeyja
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer í dag í opinbera heimsókn til Færeyja.
Meðan á heimsókninni stendur mun forsætisráðherra eiga fund með Kaj Leo Johannessen, lögmanni Færeyja, en hann sótti Ísland heim í október síðastliðnum. Ráðherra mun einnig hitta færeysku ríkisstjórnina, auk þess að kynna sér menningu og sögu Færeyja. Heimsókn forsætisráðherra lýkur síðdegis á miðvikudag.
Reykjavík 6. september 2010