Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
20. september 2010 /
Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra fundar með Ivan Gasparovic forseta Slóvakíu


Jóhanna Sigurðardóttir og Ivan Gasparovic
Jóhanna Sigurðardóttir og Ivan Gasparovic

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, tók í dag á móti forseta Slóvakíu, Ivan Gasparovic í heimsókn hans til Íslands. Ítarlega var rætt um málefni Evrópusambandsins, efnahagsmál landanna beggja og aðstæður rómafólks. Einnig var rætt um ýmis sameiginleg hagsmunamál  m.a. nýtingu og vernd vatns og jarðhitaauðlinda landanna.

Var efnið hjálplegt?