Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30. desember 2010 /
Utanríkisráðuneytið

Guðmundur Eiríksson afhendir trúnaðarbréf í Singapúr

Guðmundur Eiríksson sendiherra afhenti í dag, 30. desember  2010, Sellapan Ramanathan forseta Lýðveldisins Singapúr trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Singapúr með aðsetur í Nýju Delí.

Að athöfninni lokinni ræddu forsetinn og sendiherrann almennt um samskipti ríkjanna, þar á meðal um möguleika á að auka gagnkvæm viðskipti.

Var efnið hjálplegt?