Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
3. mars 2011 /
Atvinnuvegaráðuneytið

Atvinnumálaráðherra Færeyja og Katrín iðnaðarráðherra heimsækja fyrirtæki


Johan Dahl og iðnaðarráðherra í fyrirtækjaheimsóknum
Johan Dahl og iðnaðarráðherra í fyrirtækjaheimsóknum

Johan Dahl, atvinnumálaráðherra Færeyja er í heimsókn á Íslandi ásamt föruneyti. Hann hefur sérstakan áhuga á frumkvöðlastarfi á Íslandi og af því tilefni bauð Katrín Júlíusdóttir honum að heimsækja með sér CCP, Marorku og Kím en það er klasi frumkvöðlafyrirtækja í heilbrigðistækni.

Allt eru þetta glæsileg fyrirtæki í allra fremstu röð sem byggja á nýsköpun og staðfastri trú á mátt sinn og megin.

 Johan Dahl og Katrín Júlíusdóttir í fyrirtækjaheimsóknum

 

Var efnið hjálplegt?