Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
16. mars 2011 /
Dómsmálaráðuneytið

Kosið á 235 stöðum í 84 löndum

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla erlendis vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðargildi laga nr. 13/2011 sem fram fer 9. apríl 2011 hófst í dag, 16. mars, á vegum utanríkisráðuneytisins. Atkvæðagreiðslan fer fram í öllum sendiráðum Íslands erlendis og aðalræðisskrifstofum Íslands í New York,  Winnipeg, og Þórshöfn í Færeyjum. Einnig er unnt að kjósa utan kjörfundar eftir samkomulagi hjá kjörræðismönnum Íslands erlendis.

Búist er við því að kosið verði á u.þ.b. 235 stöðum í 84 löndum. Væntanlegum kjósendum er vinsamlegast bent á að hafa samband við ræðismenn áður en þeir koma til að kjósa.

Sjá nánar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar erlendis hér á vef utanríkisráðuneytisins.

Var efnið hjálplegt?