Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
5. september 2011 /
Forsætisráðuneytið
Forsætisráðherra fundar með Kuupik Kleist formanni landsstjórnar Grænlands

Forsætisráðherra og Kuupik Kleist, formaður landsstjórnar Grænlands, funduðu í dag á Þingvöllum. Ræddu þau meðal annars tvíhliða samskipti Grænlands og Íslands, þróun sjálfstæðismála á Grænlandi, efnahagsmál, aðildarviðræður Íslands við ESB og samstarf Grænlands við ESB.
Forsætisráðherrahjónin buðu til hádegisverðar í Þingvallabænum, til heiðurs formanni landsstjórnar Grænlands.