Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
28. október 2011 /
Heilbrigðisráðuneytið
Skipulag heilbrigðisþjónustu og ráðstöfun fjármuna. Tillögur ráðgjafahóps velferðarráðherra.
Í september síðastliðunum setti Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra á fót ráðgjafahóp til að fjalla um skipulag heilbrigðiskerfisins og ráðstöfun fjármuna. Hópnum var ætlað að skoða hvort þörf væri á grundvallarbreytingum og í hverju þær gætu falist þannig að unnt væri að uppfylla markmið um öryggi og jöfnuð á sama tíma og aðhaldskröfum fjárlaga væri mætt.