Höfundar handbókarinnar „Ungt fólk og kynlíf“, þær Sóley S. Bender,
Guðbjörg Edda Hermannsdóttir og Solveig Jóhannsdóttir, afhentu Katrínu
Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra eintak af bókinni. Höfundar handbókarinnar „Ungt fólk og kynlíf“ afhentu Katrínu Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra eintak af bókinni.
Komin er út handbókin Ungt fólk og kynlíf, sem er nýtt kynfræðsluefni fyrir framhaldsskóla. Handbókin er einkum ætluð kennurum og skólahjúkrunarfræðingum í framhaldsskólum, sem veita kynfræðslu á fyrstu stigum framhaldsskólans.
Í bókinni eru 10 kaflar sem fjalla um kynheilbrigði á einn eða annan hátt. Megináherslan er á samskipti og ábyrgt kynlíf en einnig aðsteðjandi ógnanir. Tilgangurinn með námsefninu er að stuðla að heilbrigðu kynlífi ungs fólks. Efnið er gefið út á vegum Fræðslusamtaka um kynlíf og barneignir (FKB) og var styrkt af samtökunum, mennta- og menningarmálaráðuneyti og Forvarnarsjóði Lýðheilsustöðvar. Hægt er að fá bókina ókeypis á rafrænu formi á síðu FKB, www.fkb.is.