Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
23. apríl 2012 /
Dómsmálaráðuneytið
Áfangaskýrsla með tillögum um umferðaröryggismál
Starfshópur sem innanríkisráðherra skipaði í apríl 2011 til að gera tillögur í tengslum við heimsátak um áratug aðgerða í umferðaröryggismálum 2011 til 2020 hefur skilað áfangaskýrslu sinni.
Skýrslan hefur að geyma ýmsar tillögur um aðgerðir í umferðaröryggismálum. Einnig tillögu er varðar slysaskráningu og lagt er einnig til að felldur verði niður tollur af búnaði sem notaður er í tengslum við umferðaröryggi.