Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
25. september 2012 /
Utanríkisráðuneytið

Trúnaðarbréf afhent í Andorra

Hinn 21. september sl. afhenti Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra, Joan Enric Vives Sicilla erkibiskupi  í Urgell trúnaðarbréf  sitt sem sendiherra gagnvart Andorra. Andorra er í umdæmi sendiráðs Íslands í París. Í tengslum við afhendinguna átti Berglind einnig fund með  Gilbert Saboya, utanríkisráðherra Andorra, þar sem rætt var meðal annars um efnahagsmál og Evrópumálefni.

Var efnið hjálplegt?