Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
30. október 2013 /
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið
Vefsvæði um mótun stefnu í málefnum barnafjölskyldna
Á grundvelli stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um fjölskylduvænt samfélag skipaði Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra verkefnisstjórn sem falið er að móta stefnu í málefnum barnafjölskyldna ásamt aðgerðaáætlun. Opnað hefur verið vefsvæði þar sem finna má nánari upplýsingar um verkefnið. Þar gefst áhugasömum einnig tækifæri á að koma ábendingum og athugasemdum til verkefnisstjórnar en það má gera með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].