Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
6. desember 2013 /
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Auður Torfadóttir hlýtur alþjóðlega viðurkenningu fyrir framlag sitt til tungumálakennslu
Hún var tilnefnd til þessarar viðurkenningar vegna margvíslegra starfa hennar í þágu tungumálakennslu á Íslandi

Auður Torfadóttir, fyrrverandi dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands, hefur hlotið viðurkenningarskjal Alþjóðasamtaka tungumálakennara fyrir lofsvert framlag til tungumálakennslu og rannsókna á sviði tungumála. Hún var tilnefnd til þessarar viðurkenningar vegna margvíslegra starfa hennar í þágu tungumálakennslu á Íslandi af STÍL samtökum tungumálakennara á Íslandi, sem eru félagar í Alþjóðasamtökum tungumálakenna FIPLV.