Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.
9. desember 2013 /
Utanríkisráðuneytið
Fulltrúi stjórnvalda við minningarathöfn um Mandela
Guðmundur Eiríksson, sendiherra Íslands gagnvart Suður Afríku, verður fulltrúi íslenskra stjórnvalda við opinbera minningarathöfn um Nelson Mandela, fyrrverandi forseta Suður-Afríku, sem haldin verður í Jóhannesarborg á morgun.
Mandela lést sl. fimmtudag, 95 ára að aldri.